Skipurit

Hagstofa Íslands tók til starfa árið 1914. Stofnunin er sjálfstæð og heyrir undir forsætisráðherra. Hagstofan vinnur hlutlægar hagskýrslur, hefur forystu um samhæfingu hagtalna, stundar rannsóknir og stuðlar þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum.

Smelltu á mynd til að stækka.

 

Hagstofan skiptist í fjögur svið; félagsmálasvið, efnahags- og fyrirtækjasvið, rekstrarsvið og stjórnsýslu og samstarf.

Hagstofunni stýrir hagstofustjóri, Hrafnhildur Arnkelsdóttir. Starfsmannamál heyra beint undir hana auk rannsóknadeildar, en deildin hefur það að meginverkefni að gera þjóðhagsspár. Hagstofustjóri og sviðsstjórar mynda yfirstjórn Hagstofunnar. Staðgengill hagstofustjóra er Elsa Björk Knútsdóttir, sviðsstjóri rekstrarsviðs.

Félagsmálasvið

Á félagsmálasviði starfa tvær deildir að félagsmálatölfræði. Atvinna, lífskjör og mannfjöldi vinnur að hagskýrslugerð um vinnuaflið, lífskjör, félagsvernd, heilbrigðismál, kosningar, stöðu kynja, lýðfræði og mannfjölda. Laun, tekjur og menntun annast hagskýrslugerð um tekjur, laun, launakostnað, menntun, skólamál, menningarmál og fjölmiðla. Margrét Kristín Indriðadóttir er sviðsstjóri félagsmálasviðs.

Efnahags- og fyrirtækjasvið

Á sviðinu starfa þrjár deildir. Ein deild sér um fyrirtækjatölfræði sem vinnur tölfræði um fyrirtæki og atvinnuvegi. Einnig heyrir utanríkisverslun undir deildina  sem sér um söfnun og úrvinnslu gagna um þjónustuviðskipti og vöruviðskipti Íslendinga við útlönd. Rekstur fyrirtækjaskrár til hagskýrslugerðar heyrir enn fremur undir deildina. Unnin er skammtímatölfræði um veltu og starfsmannafjölda eftir atvinnugreinum sem og árleg tölfræði um rekstur og afkomu atvinnugreina. Tölfræði um ferðaþjónustu, umhverfi, sjávarútveg og landbúnað heyrir undir deildina. Einnig heyrir tölfræði um rannsóknir og þróun í íslensku hagkerfi, sem og tölfræði um nýsköpunarvirkni fyrirtækja, undir deildina.

Vísitöludeild sér um útreikning vísitölu neysluverðs, vísitölu byggingarkostnaðar, vísitölu framleiðsluverðs og skyldar verðvísitölur. Deildin sér einnig um alþjóðlegan verðsamanburð (PPP) og frágang og útgáfu á niðurstöðum úr rannsókn á útgjöldum heimilanna.

Deild um þjóðhagsreikninga og opinber fjármál vinnur að framleiðslu-, ráðstöfunar- og tekjuskiptingaruppgjöri þjóðhagsreikninga, gerð ársfjórðungsreikninga, fjármálareikninga og ferðamálareikninga. Einnig vinnur deildin að gerð hagvísa og annast hagskýrslugerð um búskap hins opinbera og um tekjuskiptingu. Björn Rúnar Guðmundsson er sviðsstjóri efnahags- og fyrirtækjasviðs.

Rekstrarsvið

Á rekstrarsviði starfa þrjár deildir, fjármáladeild, gagnasöfnunardeild og upplýsingatæknideild. Fjármáladeild sér um rekstur, bókhald og fjármál. Upplýsingatækni annast rekstur og þjónustu vegna tölvukerfa. Deildin sér einnig um hönnun, forritun og rekstur á sérsniðnum hugbúnaðarlausnum. Gagnasöfnun vinnur, eins og nafnið gefur til kynna, að gerð úrtaksrannsókna og annarri gangnasöfnun. Elsa Björk Knútsdóttir er sviðsstjóri rekstrarsviðs.

Stjórnsýsla og samstarf

Undir sviðið heyra samskipti, almannatengsl, útgáfumál, vefur, alþjóðasamstarf, aðferðafræði, gæða- og öryggismál, persónuverndarmál, umsýsla sérvinnslubeiðna, samstarf við aðra framleiðendur hagtalna, þjónusta við rannsóknarsamfélagið og umsýsla umsókna um aðgang að trúnaðargögnum. Ólafur Arnar Þórðarson er sviðsstjóri stjórnsýslu og samstarfs.